Refund policy

Sérsniðin vara – enginn 14 daga skilaréttur

Hver myndabók er búin til og prentuð eftir pöntun og sérsniðin að þinni beidni. Samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga gildir 14 daga réttur til að falla frá samningi í fjarsölu ekki um vöru sem er framleidd eftir forskrift neytanda eða er greinilega sérsniðin. Því er ekki hægt að skila bók eða fá hana endurgreidda vegna þess eins að þú hafir skipt um skoðun.

Gölluð eða skemmd bók

Ef bókin er gölluð, skemmd við afhendingu eða ekki í samræmi við pöntunina skaltu hafa samband sem fyrst og senda mynd af gallanum. Við prentum þá nýtt eintak þér að kostnaðarlausu eða endurgreiðum pöntunina. Þetta hefur engin áhrif á lögbundinn rétt þinn vegna galla.

Afpöntun

Ef prentun er ekki hafin geturðu haft samband og við reynum að afpanta og endurgreiða.

Samband

Netfang: tommigt@gmail.com